Evrópusambandið fyrir unga fólkið!

logo_nytt_ekki_me_ramma.png

Á Íslandi erum við það lánsöm að búa í heimsálfu þar sem lengir hefur ríkt friður. Þá eigum við ekki íerfiðleikum með að ferðast milli landa og það er auðveldara en nokkru sinnifyrr að stunda nám eða starfa nánast hvar sem er í álfunni. Okkar kynslóð á þaðtil að taka þessu sem gefnum hlut en fyrri kynslóðir sem muna tíma harðstjórnarkommúnista austar í álfunni og jafnvel tíma heimsstyrjalda gera það ekki.Þessum breyttu aðstæðum Evrópubúa má meðal annars þakka stofnun Evrópusambandsinsen það var stofnað í þeim tilgangi að stuðla að friði, frelsi og jafnrétti íálfunni með því að sameina ákveðna hagsmuni og auka samstarf á meðal þjóðaEvrópu.

Ísland hefur í langan tímatekið þátt í samstarfi Evrópuþjóða. Hins vegar höfum við hingað til ekki óskaðeftir því að taka skrefið til fulls þrátt fyrir að oft hafi komið upp umræða umslíkt. Nú höfum við hins vegar sótt um aðild að Evrópusambandinu og þar afleiðandi óskað eftir því að standa öðrum þátttakendum samstarfsins jafnfætis.

Af þeirri ástæðu var hreyfingUngra evrópusinna stofnuð í september síðastliðnum. Um er að ræða þverpólitískahreyfingu ungliða sem telja að hagsmunum Íslands geti verið best borgið meðaðild að Evrópusambandinu, enda sé nauðsynlegt fyrir þjóðina að taka fullanþátt í samstarfi Evrópuþjóða á efnahagslegum, menningarlegum, félagslegum ogstjórnmálalegum grundvelli.

Ungir evrópusinnar teljaað Evrópusambandsaðild hafi margt að bjóða ungu fólki. Evrópusambandið rekurtil dæmis sérstaka stefnu í málefnum ungs fólks, svokallaða Ungmennaáætlun. Húnstuðlar meðal annars að auknu samstarfi og skilningi milli þjóða með því aðauðvelda ungu fólki að öðlast reynslu í öðrum Evrópuríkjum, hvort sem það ermeð því að stunda nám, starfa eða vinna sjálfboðastörf innan Evrópusambandsins.Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að unga fólkið okkar hafi kost á því aðafla sér reynslu erlendis.

Þrátt fyrir að Ísland sénú þegar þátttakandi í ungmennaáætlun sambandsins njóta Íslendingar ekki allrasömu réttinda og íbúar Evrópusambandsins. Sem dæmi má nefna að þar sem við erumekki aðildarríki ESB þurfum við að borga mun hærri skólagjöld meðal annars íBretlandi, en þar getur munurinn verið allt að 10.000 pund fyrir árið. Aðild aðEvrópusambandinu myndi því gera ungum Íslendingum auðveldara með að mennta sigannars staðar í Evrópu. Aðild myndi þar að auki leiða til fjölbreyttara ogöflugara atvinnulífs hér á landi og fengi ungt fólk því fleiri tækifæri tilþess að nýta menntun sína og reynslu hér heima.

Þetta er aðeins eitt dæmi affjölmörgum um kosti aðildar að Evrópusambandinu, en mikilvægt þó. Ungirevrópusinnar munu á næstunni dreifa upplýsingum um Evrópusambandið og komahugsjónum og hugmyndafræði sambandsins á framfæri við unga fólkið. Þá vilja Ungirevrópusinnar hvetja til og stuðla að opinni og upplýsandi umræðu um samstarfEvrópuríkja, en það er mikilvægt að umræðan sé málefnaleg og heiðarleg til þessað auðvelda ungu fólki, og öðrum, að taka upplýsta ákvörðun þegar kemur að þvíað kjósa um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Höfundar eru Sema Erla og Ingvar Sigurjónsson, formaður og varaformaður Ungra evrópusinna.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 12. nóvember sl.

 

www.ungirevropusinnar.is og  http://www.facebook.com/group.php?gid=114447873367&ref=ts


mbl.is Ásmundur Einar nýr formaður Heimssýnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

,,Á Íslandi erum við það lánsöm að búa í heimsálfu þar sem lengir hefur ríkt friður." ?????

Þetta er hæpin fullyrðing, svo ekki sé meira sagt. Það eru ekki mörg ár síðan NATO stóð blóðugt uppað öxlum á Balkanskaganum. Enn þann dag í dag standa hinir friðelskandi evrópubúar í stríðsrekstri í Afganistan og Írak og þess albúnir að hjóla í Írani og eflaust fleiri þjóðir, ef þeir telja hagsmunum auðvaldsins betur borgið með þessháttar athöfnum.

Jóhannes Ragnarsson, 15.11.2009 kl. 20:52

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Þá unga fólkið sem býr t.a.m. við gríðarlegt atvinnuleysi í flestum ríkjum Evrópusambandsins og hefur gert um árabil? Nokkuð sem var til staðar löngu fyrir efnahagskreppuna sem nú er í gangi þó hún hafi auðvitað ekki bætt stöðuna.

Hjörtur J. Guðmundsson, 15.11.2009 kl. 21:17

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hjörtur... skrif þín eru móðgun við heilbrigða skynsemi.

Jón Ingi Cæsarsson, 15.11.2009 kl. 21:18

4 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Jón Ingi, útskýrðu hvað þú átt við?

Hjörtur J. Guðmundsson, 15.11.2009 kl. 21:31

5 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Atvinnuleysi ungs fólks á aldrinum 15 til 24 ára í nokkrum ríkjum Evrópusambandsins í september 2009 (námundaðar nýjustu tölur Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins):

Spánn 42%
Írland 28%
Svíþjóð 26%
Grikkland 25% (júní)
Frakkland 25%
Ítalía 25% (júní)
Belgía 21%


o.s.frv. o.s.frv. o.s.frv.

Heimasíða Eurostat:
http://epp.eurostat.ec.europa.eu/tgm/table.do?tab=table&init=1&language=en&pcode=teilm021&plugin=1

Hjörtur J. Guðmundsson, 15.11.2009 kl. 21:41

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það er mjög sérkennilegt að ung kona sem kennir sig við frjálsa Palestínu berjist fyrir afsali auðlinda Íslands og vilji koma unga fólkinu í skuldaánauð evrópskra nýlenduþjóða. 

Sigurður Þórðarson, 15.11.2009 kl. 21:58

7 identicon

Tek undir með Sigurði Þórðarsyni hér að ofan.Vonandi er fáfræði líkt og er hjá Semu ,ekki algengt hjá æsku landsins.Ef svo er að þá er vá fyrir framtíð Íslensku þjóðinni.

Númi (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 23:02

8 identicon

Þetta er bara hjarðhugur hjá evrusinnum, þau koma sjaldan með einhver góð rök fyrir inngöngu nema eitthvað bull um verðlag.

Gleymið þessu og gerið eitthvað annað, því Ísland mun ekki fara í EU!

Valur (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 23:28

9 Smámynd: Sema Erla Serdar

Þið eruð öll yndisleg, sérstaklega þið sem talið um fáfræði og bull :) slíkt dæmir sig sjálft!

Sema Erla Serdar, 16.11.2009 kl. 00:34

10 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Sema, hvað með þá sem afgreiða málflutning annarra sem "móðgun við heilbrigða skynsemi" og færa síðan engin rök fyrir máli sínu?

Þess utan, værirðu ekki til í að tjáð þig um atvinnuleysi ungs fólks innan Evrópusambandsins? Finnst þér það ekki skipta heilmiklu máli að ungt fólk hafi atvinnu? Varla er það eitthvað aukaatriði? Þykir þér atvinnuleysi á meðal ungs fólks upp á tugi prósenta, virkilega ásættanlegt og það jafnvel á góðæristímum? Er þetta fyrirheitna landið?

Þess utan, munuð þið ungir Evrópusambandssinnar ekki örugglega upplýsa ungt fólk á Íslandi vel og vandlega um atvinnuleysið innan sambandsins í röðum ungs fólks? Svona í nafni... heiðarleika?

Hjörtur J. Guðmundsson, 16.11.2009 kl. 09:32

11 identicon

Hjörtur: Að þú skulir benda á tölur um atvinnuleysi í ákveðnum ríkjum ESB og gefa í skyn að það myndi eiga við hér við hugsanlega inngöngu er misvísandi í meira lagi. Atvinnuleysi er mismunandi eftir aðildarríkjum ESB. Í sumum er það lágt (t.d. Hollandi og Austurríki) en í öðrum afar hátt (t.d. Spáni og Lettlandi). Þetta ætti ekki að koma á óvart þar sem megnið af aðgerðum í atvinnumálum er í höndum ríkjanna sjálfra. ESB kemur ekki í veg fyrir að þau haldi illa á sínum eigin spilum.

Ég veit að þú ert vel lesinn um þessi mál, ólíkt því sem flestir sem hafa gert athugasemdir hér að ofan virðast vera, og því hefði ég búist við meiru af þér.

Ingvar Sigurjónsson (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 14:07

12 identicon

Sigurður: Ef þú heldur að Íslendingar "afsali auðlindum sínum" og komi ungu fólki í "skuldaánauð evrópskra nýlenduþjóða" með inngöngu í ESB, þá máttu taka kommentið mitt um illa lesið fólk að skilja eftir athugasemdir til þín sérstaklega.

 Svona rangfærslur og hræðsluáróður er umræðunni ekki til góða.

Ingvar Sigurjónsson (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 14:16

13 identicon

Jóhannes: Líklega er rétt að gagnrýna okkur fyrir upphafssetninguna með vísun í ófriðinn á Balkanskaga og við hefðum átt að hugsa hana betur.  Hún breytir hins vegar engu um innihald og boðskap greinarinnar.  Þú virðist aðallega vera að tala gegn NATO-aðild.

Ingvar Sigurjónsson (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 14:30

14 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Ingvar:
Kynntu þér tölur yfir atvinnuleysi innan Evrópusambandsins og þá sérstaklega hjá ungu fólki undanfarin ár og þá kemstu að raun um að tiltölulega lágt atvinnuleysi þar á bæ (samt 4-5%) heyrir fremur til undantekninga en að um einhverja reglu sé að ræða.

Ég nefndi aðeins nokkur lönd hér að ofan einfaldlega vegna þess að þau eru svo mörg, nennti ekki að skrifa þau öll upp og setti því einfaldlega þrefalt "o.s.frv." fyrir aftan og svo tengilinn á heimildina á heimasíðu Eurostat. Kíktirðu ekki á það áður en þú svaraðir?

Ég sagði þess utan reyndar ekkert um það hér að ofan að atvinnuleysi hér á landi myndi aukast við inngöngu í Evrópusambandið. En Sema var að tala um að sambandið væri fyrir ungt fólk og það er ungt fólk víðar en á Íslandi. Ég sé ekki að Evrópusambandið hafi hjálpað ungu fólki mikið í atvinnumálum sem þó er auðvitað gríðarlega mikilvægur málaflokkur.

Þess utan er það svo að ef við gengjum í Evrópusambandið og tengdum okkur við ERM II áður en hægt væri að taka upp evruna þá myndi það að öllum líkindum festa í sessi verulegt atvinnuleysi hér á landi þar sem það leiddi óhjákvæmilega til minni sveigjanleika á vinnumarkaðinum. Þetta benti t.a.m. Joseph Stiglitz á í heimsókn til Íslands fyrir skemmstu.

Þannig að það er spurning að anda aðeins með nefinu.

Hjörtur J. Guðmundsson, 19.11.2009 kl. 11:52

15 Smámynd: Sema Erla Serdar

Sá vinkill sem tekinn er í þessari grein er ESB og unga fólkið, það er rétt hjá þér Hjörtur. Ef þú hefur kynnt þér Ungmennaáætlun ESB og aðra hluti fyrir unga fólkið hjá ESB ættiru að vita að þetta er rétt hjá mér.

Afhverju segiru til dæmis ekkert um einn af stærstu punktunum í greininni, að ef við værum í ESB gæti munað allt að 10.000 pundum á skólagjöldum fyrir hvert ár, í Bretlandi. Þetta eru um 2. milljónir íslenskar krónur.

Ég amk vildi geta farið í skóla í bretlandi eða sent börnin mín þangað án þess að fara á hausinn.

Sema Erla Serdar, 19.11.2009 kl. 12:48

16 identicon

Ég hef oft séð tölur um atvinnuleysi í löndum ESB. Það sem ég var að segja er að það er ekki við Evrópusambandið að sakast þó þær séu stundum háar. Lönd innan ESB stjórna sínum atvinnumálum nefnilega sjálf. Atvinnuleysi er t.d. gríðarhátt á Spáni vegna þeirra eigin klúðra. Atvinnuleysi er yfirleitt hátt í Þýskalandi því þeir reka óskiljanlega stefnu í atvinnumálum. Evrópusambandið skiptir sér ekki af því.

Evrópusambandið hefur þrátt fyrir þetta hjálpað ungu fólki í atvinnumálum t.d. með því að auðvelda því að ná sér í menntun, auðvelda því að ferðast um álfuna svo það geti farið þangað sem störf við þeirra hæfi bjóðast, samræma staðla milli landa svo að sá sem hefur lært að vera t.d. læknir eða pípari í einu landi geti stundað sína iðju í öðru o.s.frv.

Það er alveg rétt hjá þér (og Stiglitz) að líklega mun vera meira atvinnuleysi hér en var í þenslunni ef við tengjumst ERM II og tökum upp evru (sama ætti við ef við tækjum upp USD). Veit ekki hvað þú átt við með “verulegt” en ég býst ekki við að það verði hærra en 4-5% sem telst eðlilegt fyrir heilbrigt hagkerfi. Það heldur því enginn maður með viti fram að það gerist bara góðir hlutir við ESB aðild en ég myndi glaður sætta mig við þennan ókost ef við í staðinn fengjum stöðugara hagkerfi, fjölbreyttara atvinnulíf og enga verðtryggingu.

Ég anda langoftast með nefinu.


Ingvar Sigurjónsson (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 15:48

17 identicon

Joseph Stiglitz talaði um að það gæti verið gott að vera með lítill sjálfstæðan gjaldmiðil í lokuðu hagkerfi. Ísland er ekki í lokuðu hagkerfi heldur hefur deilt hagkerfi með Evrópuþjóðum frá undirritun EES samningsins. Frelsið sem hann talaðium að væri gott er að geta gengisfellt gjaldmiðilinn þegar hentar og það er búið að gengisfella Íslensku krónuna meira en 2000 fallt síðan hún var tekin epp. Spurningin er hversu lengi og oft það er raunhæft.

Gyða (IP-tala skráð) 20.11.2009 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og nítján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband